Hversu "grænt" er þetta lið??

Rétt hjá þeim að planta sér upp við virkjun sem er hvað fremst í heiminum að vinna endurnýtanlega orku, enda held ég að þau ættu að gera sér ferð inn í virkjunina og skoða, svona til að kynna sér málið ÁÐUR en farið er að blása í herlúðrana.

Ok, það er jarðrask í kringum en ég hef fulla trú á að OR muni snyrta landið og koma upp göngustígum og gera svæðið að útivistarsvæði, eins og þeir hafa gert á Hengilssvæðinu kringum Nesjavallavirkjun. Fólk þarf bara að gera sér grein fyrir því að það tekur tíma að græða upp á Íslandi.

Kv EJE

mbl.is Mótmælabúðir á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott mál..

Eina rétta í stöðunni er að taka þetta föstum tökum og stöðva eins fljótt og auðið er, og vonandi fer fólk ekki að fávitast við að hrópa "Lögregluofbeldi" eina ferðina enn.
Skil reyndar ekki mbl að vera næstum að ýta undir þannig umræðu með því að segja að þessi lögregluþjónn sé að þrýsta manninum í götuna, get ekki betur séð af stöðu hans að líkamsþunginn hvíli á þeim fæti sem er á götunni og hann tylli fæti í bak kauðans.

Fólk er kannski búið að gleyma myndbandinu af eltingarleik í Kópavogi sem endaði með því að saklaus borgari endaði á sjúkrahúsi eftir mjög harðann árekstur???



Pirrar mig líka reyndar að það er búið að setja einhverja gay Miami Vice tónlist inn á þetta.

En ég segi til hamingju Lögregla, og takið bara áfram fast á lögbrjótum Police

Kv EJE

mbl.is Glæfraakstur í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hafa hátt?

Nóg heyrist nú í þessum þyrlum þegar þær fljúga yfir hausnum á manni, er akkúrat að vinna undir vinsælustu fluglínunni í gær og nei, þetta fór ekki hljóðlega.

mbl.is Þyrlur sóttu tugi manna á Suðurland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

pff ..

Hann vill greinilega bara ekki að kærastan fái bílinn sinn remban sú arna Tounge

Kv EJE
mbl.is Bjánalegasta bílferðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já það þarf sannarlega ...

Ég hvet til þess að öll undirgöng höfuðborgarsvæðisins verði merkt kyrfilega, það eru alls ekki bara nálægir íbúar sem þurfa að nýta sér þessi hjálpartæki í umferðinni. Göngin þarf að merka þannig að það sjáist úr öllum mögulegum göngu og hjólaleiðum að þeim hvar þau eru.

Ég lenti sjálfur í því um daginn að vera ekki kunnugur staðháttum og lagði mig í hættu við að fara yfir fjórar akreinar við hringtorg sem ekki sást yfir (við Kaplakrika í Hafnarfirði) og loks þegar ég kom yfir bölvandi aðstæðum fyrir gangandi vegfarendur ÞÁ sá ég lítið skilti bak við tré sem benti á undirgöng sem voru víst nokkra metra frá þeim stað sem ég hljóp yfir götuna.

Umferðar mannvirki eru mjög fjölbreytt og ekki alltaf ljóst hvar göngu og hjólaleiðir eru, og reyndar eru þær stundum ekki til staðar eða amk ekki góðar lausnir til að halda áfram för sinni nema með því að ráfa um og leita lausna. Ég hef nokkru dæmi sem ég nenni ekki núna að lista upp hérna.

Kv EJE

p.s. ég labba mikið um höfuðborgarsvæðið


mbl.is Þurfa undirgöng merkingar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arfavitlaust..

Við erum þegar rúmann klukkutíma "off" í hina áttina og ættum í raun að vera með seinni klukku en Greenwitch tímann um amk. klukkutíma en sólarhádegi í Reykjavík er að meðaltali ca. kl hálf tvö (rétt ætti það að vera kl. tólf á hádegi) en yrði þá um kl hálf þrjú ef Seyðfirðingar ná fram þessu bulli sínu.

Þessi mismunur sem við þegar lifum við hefur víst áhrif á okkur þó mis alvarlega þar sem við erum með innbyggða klukku sem segir okkur svona ca. hvenær er dagur og hvenær er nótt, og ef einhver þarna úti á börn, konu og mann sem eru erfið á fætur á morgnana þá getur þetta einmitt verið skýringin (ekki lagast það við að fara lengra í austur með tímann).

Rökin sem menn eru að nota að það vanti sól eftir vinnu eru að mínu mati fáránleg, en sumir í viðskiptum nota líka að það sé "erfitt" að skipta við Evrópu á sumrin, hvernig í andsk... geta Bandaríkjamenn þá átt samskipti td. við Japan??
Sum fyrirtæki opna nú fyrr á sumrin, hafa menn ekki spáð í því?
Seyðfirðingar eru nú líka örugglega ekki þeir einu sem hafa fjöll sem skyggja á þá, en við þá eins og alla aðra sem bera fyrir sig landfræðilegum rökum í kvörtunum vill ég segja "Þið völduð að búa þarna!"

Ég vill fyrir alla muni halda þessu svona eins og þetta er og alls ekki fara að hringla með tímann tvisvar á ári, þetta er ruglingslegt fyrir alla og algerlega óþarft að mínu mati.

Kv EJE



mbl.is Vilja sjá lengur til sólar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri mikið nær...

.. Að finna lausn sem felur í sér að losna ENDANLEGA við þessi "fáu" hár sem maður er að skafa amk. vikulega af kollinum.

Kv EJE (skalli að eigin vali til fjölda ára)

mbl.is Ný meðferð við skalla virðist lofa góðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálendið er allt lokað...

Það sést greinilega á vef Vegagerðarinnar, en það er spurning hvort ætti ekki að hafa þá mynd uppi "live" á skjá á bensínstöðvum, vegasjoppum bílaleigum og í raun öllum stöðum þar sem túristar eiga leið um á bílum?

Mætti líka hafa á sama skjá fróðleik um akstur á rétt rúmlega einbreiðu vegum sem við köllum þjóðvegi.

Kv EJE
mbl.is Bjargað af hálendinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatnið er gott mál..

En er ekki alger óþarfi að nota hákarlinn okkar til landkynningar ??

Mér finnst við geta boðið upp á margt annað sem upphefur matargerðarlist okkar í augum útlendinga, það eru meiri líkur á gestir okkar hreinlega þori ekki að þiggja mat aftur af íslending ef þau hafa smakkað hákarlinn.

Kv EJE 


mbl.is Íslenskt vatn í Cannes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft verið sagt....

Að það séu "reglur" og svo séu það "Ferrari reglurnar"

Dálítið sérstakt hvað þeir virðast oft sleppa með hitt og þetta eða komast upp með meira.

Þetta er auðvitað bara það sem mér finnst

Kv EJE

mbl.is Hefur Ferrari aukið mótorafl?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

SkallaKall

Höfundur

Eggert J. Eiríksson
Eggert J. Eiríksson
Bara kall með skalla (að eigin vali reyndar)
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband