Súpukjöt ofl.

Sko.. EF lambakjötsframleiðslan drullaðist til að nútíma væða sig meira þá væri ég alveg til í að versla það kjöt meira.

Það er bara eiginlega ekki hægt að fá lambakjöt öðruvísi en í heilum stykkjum (læri hryggur og álíka) eða sneitt í súpukjöt, frosnar lærisneiðar og kótilettur og kryddað/marinerað í tætlur í grillpakkningum.

Segjum sem svo að einhverjum dytti nú í hug að búa einn og vilji fá sér "lítinn" pakka af íslenska lambakjötinu og eins og nútíma heilsustefnan er þá er ekki séns að fá fitulítil beinlaus stykki og eða "gúllas" í neytenda pakkningum.
Þetta með grillpakkana á sumrin er nú svo útaf fyrir sig annað djók, feitt ljót skorið kjöt falið í kryddi eða marineringu og ég lýg því ekki þegar ég segi ykkur að ég hafi einu sinni fengið lærisneiðarbita sem var með beininu langsum söguðu í sneiðinni!! EF ég versla kjöt á grill þá forðast ég lambið.

Finnst reyndar skrýtið hvað kjúllinn er vinsæll hérna miðað við hvurslag rusl er þar inn á milli, prófiði td. að elda þessar "ódýru" pakkningar af leggjum og vængjum fyrir ung börn (lítið kryddað), og sjáiði hvort þið finnið ekki fiskimjöls (!!!!!) bragð af kjötinu Frown

Kv EJE

mbl.is Meira selt af alifugli en kindakjöti í fyrsta skipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

SkallaKall

Höfundur

Eggert J. Eiríksson
Eggert J. Eiríksson
Bara kall með skalla (að eigin vali reyndar)
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband